Beitarhólf 2026

Umsóknir um beitarhólf fyrir árið 2026 skulu berast skriflega til beitarnefndar Borgfirðings fyrir fimmudag 14. maí n.k., í netföng:
dila@simnet.is, Ólafur Þorgeirsson (899 6179)
sigurdur@menntaborg.is Sigurður Örn Sigurðsson (862 1378)
Í umsóknum skal tilgreina fjölda hrossa sem sótt er um fyrir, í sumarbeit, í haustbeit eða í heilsársbeit.
Mikilvægt er að umsóknir séu komnar til beitanefndar í síðasta lagi fimmtudag 14. maí, n.k., annars er ekki tryggt að félagsmenn fái beitarhólf.
Skilyrði fyrir úthlutun, er eins og áður, að gengið sé frá beitarsamningi og greiðslu beitargjalds áður en beitartími hefst, en skv. samningi við Borgarbyggð er það 10. júní, ár hvert. Stjórn félagsins vill árétta að þeir sem skulda beitargjöld 2025 þurfa að gera upp til að eiga möguleika á að fá úthlutað 2026.
Beitarnefnd vill, af gefnu tilefni, árétta að beitarhólfin eru eingöngu ætluð fyrir reiðhross, en ekki stóðhesta, tryppi, ótamin hross eða folaldsmerar!

Þar sem rafmagn er á girðingum verða leigutakar að vera búnir að yfirfara girðingar sínar fyrir 10. júní

Beitarnefnd Borgfirðings

Deila frétt!