Félagsmenn fá frían aðgang að höllinni virka daga frá kl. 16:00-22:00 og um helgar frá kl. 10:00-22:00 þegar hún er ekki í annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið og mót/sýningar. Börn í höllinni eru þar ávallt á ábyrgð foreldra.
Handhafar aðgangskorta hafa aðgang að höllinni þegar hún er ekki í annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið og mót/sýningar. Miðað er við að höllin geti verið í notkun frá kl. 07:00 til 24:00
Fullorðnir handhafar aðgangskorta mega hafa börn sín undir fermingu með sér í höllinni án þess að greiða fyrir þau. Börn í höllinni og eru þar ávallt á ábyrgð foreldranna.
Handhafar aðgangskorta hafa aðgang að sal hallarinnar en ekki öðrum rýmum hennar.
Miðað er við að hver og einn sé ekki lengur en einn klukkutíma í höllinni í senn bíði aðrir eftir því að nota höllina.
Heimilt er að fjórir til sex aðilar séu í höllinni í einu.
Frumtamningar eru ekki leifðar á milli kl 16 og 20 eða þegar það eru námskeið í höllini.
Allur aðgangur er gefinn út á kennitölu og hefur sá einn aðgang sem er skráður fyrir honum.
Misnotkun kann að leiða af sér að viðkomandi aðgangi verði lokað án bóta
Þeir sem keypt hafa einkatíma í höllinni hafa hana einir til umráða.
Notendur hallarinnar skulu ganga snyrtilega um m.a. þrífa upp hestaskít eftir sína hesta og annað rusl. Óheimilt er að hafa hrossin laus í reiðhöllinni. Verði notendur uppvísir að slæmri umgengni er stjórn hallarinnar heimilt að banna þeim afnot af höllinni. Séu þeir búnir að greiða fyrir afnot af höllinni fram í tímann fá þeir það ekki endurgreitt.
Notkun á hesthúsi yfir nótt er ávallt háð samþykkis/leyfis frá stjórn.
Bæði notendur hallarinnar og gestir eru ávallt í höllinni á eigin ábyrgð.
Notendur hallarinnar skulu sýna hver öðrum tillitssemi og vera öðrum til fyrirmyndar í hvívetna.
Hjálmskylda er í höllinni.
Reykingar og notkun annnarra vímuefna eru stranglega bannaðar í reiðhöllinni.
Stjórn hallarinnar hefur ávallt heimild til að taka höllina undir sýningar eða aðra starfsemi og verða þá almennir notendur að víkja.
