B Ú S T O F |
Matvælastofnun vekur athygli
á að haustskýrsluskil fyrir árið 2017 standa nú yfir. Í samræmi við lög um
búfjárhald nr. 38/2013 skulu umráðamenn/eigendur búfjár skila inn haustskýrslu
um búfjáreign, fóður og landstærðir fyrir 20. nóvember. Skrá skal
haustskýrslu á rafrænu formi í gegnum gagnagrunninn Bústofn.
Aðgangur að haustskýrslu fæst
með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli. Nánari upplýsingar um Íslykil
má nálgast hér.
Þeir sem
ekki hafa tök á því að skila sjálfir í gegnum Bústofn stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins (RML) við skil á haustskýrslu. Fyrir þá þjónustu er innheimt
samkvæmt gjaldskrá RML.