Núna á fimmtudaginn kl. 19:00 hlýst okkur sá heiður að taka á móti Jakob Svavar Sigurðsson í Faxaborg, þar sem hann verður með sýnikennslu fyrir okkur. Kobbi er einn af fremstu knöpum heims og hér gefst einstakt tækifæri til að sjá hann að störfum, fylgjast með vinnubrögðum hans og fá innblástur frá einum þeim besta í greininni.
Aðgangseyrir:
2000 kr. fyrir fullorðna
1000 kr. fyrir 16 ára og yngri
Opið fyrir öllum!
Við hlökkum til að hittast sem flest, horfa, læra og sækja innblástur!
Sjáumst í Faxaborg, mætið tímanlega og tryggið ykkur sæti! 🐎✨
Deila frétt!
