Hestamannafélagið Geysir heldur Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum á Hellu dagana 12. til 16. ágúst 2020.
Keppnisnefnd LH hefur gefið út lágmörk inn á Íslandsmót og vakin er athygli á því að þau hafa verið hækkuð um 0,4 frá því sem verið hefur undanfarin ár í tölti T1, fjórgangi og fimmgangi og um 0,2 í gæðingaskeiði.
Það er parið, hesturinn og knapinn, sem þurfa að ná eftirfarandi lágmörkum og mega einkunnir parsins vera allt að tveggja ára gamlar. Einkunnir sem nást í T1, T2, V1, F1, PP1, ásamt einkunum sem nást í T3, V2, F2, T4 duga til þátttöku á Íslandsmóti. Engin lágmörk eru í ungmennaflokki.
Lágmörk fyrir Íslandsmót 2020 eru sem hér segir:
Tölt T1 6,9
Fjórgangur V1 6,6
Fimmgangur F1 6,4
Tölt T2 6,2
Gæðingaskeið PP1 6,7
250 m skeið 26 sekúndur
150 m skeið 17 sekúndur
100 m skeið 9 sekúndur