Þá er lokið stærsta íþróttamóti landsins þetta árið – Reykjavíkurmeistaramótinu. Þar átti Borgfirðingur nokkra keppendur sem allir stóðu sig vel. Hér verður þeirra getið sem lentu í verðlaunasætum. Systurnar frá Skáney, Kristín Eir H Hauksdóttir og Sara Margrét H Hauksdóttir gerðu góða ferð á mótið. Kristín Eir varð í 3. sæti í gæðingaskeiði og sigraði glæsilega í 100 m. skeiði á tímanum 7,71 á Þórfinni f. Skáney. Hún sigraði líka fjórganginn á Þyt f. Skáney, var í 3. sæti I tölti T3 og var stigahæsti unglingurinn á mótinu.
Sara Margrét sigraði V5 í barnaflokki og var í 6. sæti í í tölti T7 eftir sigur í B úrslitum.
Kristján Fjeldsteð varð í 4 – 5 sæti í B úrslitum í tölti T3 í barnaflokki á Kólutípu f. Nýja-Bæ
Arna Hrönn Ámundadóttir varð í 3. sæti í tölti T3 og 5. sæti í fjórgangi V2 í 2. Flokki fullorðinna á Aspari f. Miklagarði. Hún sigraði einnig í fjórgangi V5 á Emblu f. Miklagarði,síðan varð hún í 5 sæti í fimmgangi F2 á Tjörva f. Tvennu. Svo varð hún í 4. sæti í tölti T7 á Gleði f. Miklagarði – hún var einnig stigahæsti knapinn í fjórgangsgreinum í 2. flokki á Aspari f. Miklagarði.
Flosi Ólafsson varð 8. Í fimmgangi F1 í meistaraflokki.
Öllum knöpum frá Borgfirðingi er óskað til hamingju með árangurinn.
Deila frétt!

