Aðalfundur 2026

Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins Borgfirðings fimmtudaginn 12. nóvember 2026 í félagsheimili félagsins við Vindás. Hefst aðalfundurinn kl. 20.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Fundarsetning
  2. Kjör starfsmanna fundarins
  3. Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar, um störf félagsins á síðasta starfsári.
  4. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða og áritaða af skoðunarmönnum félagsins
  5. Skýrslur nefnda
  6. Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga og skýrslur nefnda, ásamt afgreiðslu á ársreikningum
  7. Kynning á inngöngu nýrra félaga og úrsögnum félagsmanna
  8. Lagabreytingar, hafi tillaga eða tillögur komið fram
  9. Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og nefnda.
  10. Ákvörðun um félagsgjöld og hagagjöld
  11. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram af fráfarandi stjórn
  12. Önnur mál, sem félagið varðar.

Félagsfólk er eindregið hvatt til að mæta og taka þannig þátt í starfi félagsins og undirbúningi fyrir næsta starfsár. Áhugasamir um störf í nefndum og/eða stjórn mega endilega koma því á framfæri við stjórn.

F.f. stjórnar

Kristján Gíslason formaður

Deila frétt!