Bikarmót Vesturlands verður að þessu sinni haldið í Búðardal og er um leið íþróttamót Glaðs. Mótið fer fram laugardaginn 24. ágúst næstkomandi. Opið er fyrir skráningar til kl. 20 að kvöldi 22. ágúst. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Glaðs og á facebook síðu félagsins.
Félagar í Hmf. Borgfirðingi, sem og félagar í öðrum félögum hér á Vesturlandi eru hvattir til að skrá sig til leiks.