Landsliðshópar LH

Nú hafa landsliðseinvaldarnir kynnt til leiks þá sem skipa landsliðshópana fyrir etta ár. Gaman er að segja frá því að Hmf. Borgfirðingur á fulltrúa í báðum hópunum, Flosi Ólafsson er í landsliði fullorðinna og Kristín Eir Hauksdóttir Holaker er í landsliðshópi 21. árs og yngri. Við erum .þess fullviss að þau koma til með að standa sig vel og óskum …

Aðgangur að Faxaborg

Á síðasta aðalfundi var ákveðið að breyta fyrirkomulaginu varðandi aðgang að Faxaborg. Árgjaldið var hækkað nokkuð en í staðinn er aðgangur að Faxaborg gjaldfrír eftir kl. 16 virka daga og allan daginn um helgar. Hins vegar greiða þeir sem vilja nota aðstöðuna á daginn að kaupa kort sk. gjaldskrá. Árskort er á litlar 25.000.- kr., gjöf en ekki gjald. Þeir …

Mótin í Faxaborg febrúar – apríl

Eftirtalin mót og keppnir verða í Faxaborg í vetur.  Örugglega verður um fleiri viðburði að ræða sem þá verða auglýstir sérstaklega. 10. febrúar – Vesturlandsdeild í hestaaíþróttum, Fjórgangur V1 14. febrúar – KB mótaröðin – Fjórgangur 3. mars – Vesturlandsdeild í hestaíþróttum – Tölt T2 7. mars – KB mótaröðin – Gæðingakeppni 21. mars – KB mótaröðin – Tölt 24. …

Frá aðalfundi

Að afloknum aðalfundi. Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt aðalfund sinn þann 27. nóvember s.l. Á dagskrá voru hefðbundin fundarstörf lögum samkvæmt en á þeim voru gerðar breytingar á fundinum. Gengu þær út á það að fækka stjórnarmönnum í 5 aðalmenn og 3 til vara en frá stofnun félagsins hafa verið 8 í stjórn. Fundargerð fundarins má finna á heimasíðu félagsins. Formaður var …

Félagsfundur í félagsheimili Borgfirðings 10 júní næstkomandi kl 21

  Boðað er til félagsfundar þriðjudaginn 10 júní næstkomandi kl 21  í félagsheimili Borgfirðings. Fundarefni er, vantrauststillaga borin upp á alla stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings. Verði vantraustillagan samþykkt þá fari fram stjórnarkjör allra 8 stjórnarsæta til bráðabirgða þar sem nýtt fólk tekur við af fyrri stjórn fram að næsta aðalfundi.

Kerruplan

Vinsamleg ábending til þeirra sem það varðar að til stendur að taka til á kerruplani í hesthúsahverfinu okkar, einungis hestakerrur verða  leyfðar á kerruplani, í samstarfi við Borgarbyggð verður þeim sem ekki fjarlægja traktora og annað sem ekki á heima á kerruplani gefinn frestur til 20 maí að taka sínar eigur að öðrum kosti verður það fjarlægt á kostnað eiganda.

Tökum tillit til náttúrunnar

Vegna hlýinda undanfarna daga viljum við koma á framfæri við félagsmenn að vinsamlegast ekki nota reiðvegina okkar undir hrossarekstur og minnka notkun vallarins eins og hægt er,  tökum tillit til hvors annars og höfum að leiðarljósi að halda reiðvegunum og okkar frábæru aðstöðu í topplagi.

Við viljum heyra í þér

Ákveðið var á síðasta stjórnarfundi að gefa félagsmönnum kost á því að koma sínum skoðunum á framfæri, hvetjum ykkur til að senda okkur línu á netfangið borgfirdingur@borgfirdingur.is Ef þið hafið eitthvað sem þið viljið að við komum á framfæri til nefnda félagsins eða hvað sem þið viljið að við tökum fyrir á næsta fundi og fá svör við þá endilega …

Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2024

Kjör Íþróttamanneskju Borgarfjarðar 2024 fór fram sunnudaginn 19 janúar í Hjálmakletti.  Borgfirðingur átti þar fulltrúa á meðal 10 efstu Flosa Ólafsson viljum við óska honum innilega til hamingju með það.  Að þessu sinni kom það í hlut Borgfirðings að sjá um viðburðinn og veitingar hafi þau Friðrika og Eyþór kærar þakkir fyrir að taka þetta að sér fyrir hönd Borgfirðings

Minningarorð

Í dag er borin til hvíldar heiðursfélagi Borgfirðings Ólöf K. Guðbrandsdóttir. Hestamannafélagið Borgfirðingur kveður kæran félaga og þakkar hennar framlag til hrossaræktar. Með mikilli einurð og dugnaði hefur Olla sinnt hrossarækt frá unga aldri. Erfitt er að gera uppá milli þeirra höfðinga sem eru úr hennar ræktun má þó nefna Aðal frá Nýja-Bæ sem lifir húsmóður sína og öðlinginn Skjanna …