Nóvember, 2021

24nóv20:0022:30Aðalfundur Borgfirðings

Nánari upplýsingar

Aðalfundur Hmf. Borgfirðings
Boðað er til aðalfundar Borgfirðings miðvikudaginn 24. nóvember 2021. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili félagsins við Vindás og hefst hann kl. 20.

Skv. 9. gr. laga félagsins skal boða fundinn með amk 10 daga fyrirvara og er dagskrá skv. eftirfarandi:

Fundarsetning
Kjör starfsmanna fundarins
Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar, um störf félagsins á síðasta starfsári.
Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða og áritaða af skoðunarmönnum félagsins
Skýrslur nefnda
Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga og skýrslur nefnda, ásamt afgreiðslu á ársreikningum
Kynning á inngöngu nýrra félaga og úrsögnum félagsmanna
Lagabreytingar, hafi tillaga eða tillögur komið fram
Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og nefnda.
Ákvörðun um félagsgjöld og hagagjöld
Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram af fráfarandi stjórn
Önnur mál, sem félagið varðar.
Engar tillögur til lagabreytinga hafa verið kynntar þannig að liður 8 fellur niður.

Stjórn Hmf. Borgfirðings

Klukkan

(Miðvikudagur) 20:00 - 22:30

Staðsetning

Félagsheimili Borgfirðings

X
X