Aðalfundur Hmf. Borgfirðings

Uppfært 18.11.2021 – Vegna fjöldatakmarkana er fundurinn færður í Hjálmaklett þar sem þar er betri aðstaða til að koma við sóttvörnum. Verði reglur hertar frá því sem nú er má búast við að áætlanir raskist enn frekar.

Boðað er til aðalfundar Borgfirðings miðvikudaginn 24. nóvember 2021. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti og hefst hann kl. 20.

Skv. 9. gr. laga félagsins skal boða fundinn með amk 10 daga fyrirvara og er dagskrá  skv. eftirfarandi:

  1. Fundarsetning
  2. Kjör starfsmanna fundarins
  3. Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar, um störf félagsins á síðasta starfsári.
  4. Gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða og áritaða af skoðunarmönnum félagsins
  5. Skýrslur nefnda
  6. Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga og skýrslur nefnda, ásamt afgreiðslu á ársreikningum
  7. Kynning á inngöngu nýrra félaga og úrsögnum félagsmanna
  8. Lagabreytingar, hafi tillaga eða tillögur komið fram
  9. Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og nefnda.
  10. Ákvörðun um félagsgjöld og hagagjöld
  11. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram af fráfarandi stjórn
  12. Önnur mál, sem félagið varðar.

Engar tillögur til lagabreytinga hafa verið kynntar þannig að liður 8 fellur niður.

Stjórn Hmf. Borgfirðings