FM 2017 – skráning í opnar greinar

Fjórðungsmót
Vesturlands verður haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júní 2017.  Í
gæðingakeppni eiga keppnisrétt félagar í hestamannafélögum á Vesturlandi, á
Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.


Á mótinu verður einnig
keppt í þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið
þar þátt:


1.    
  Tölt opinn flokkur


2.    
  Tölt 17 ára og yngri


3.    
  100 metra fljótandi skeið


4.    
  150 metra skeið


5.    
  250 metra skeið


 

·         Skráningargjald í tölt er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á
hvern hest í skeiðgreinum


·         Skráning í þessar greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á
miðnætti sunnudaginn 18. júní og fer hún fram í gegnum SportFeng


·         SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132.

·         Skráningargjöld skal greiða á reikning:

  • kt. 450405-2050

  • banki: 0326-26-002265

  • kvittun fyrir greiðslu skráningargjalda
    skal send á netfangið
    thoing@centrum.is Mjög áríðandi að
    kvittun sé send á þetta netfang

·  Í lok skráningarferlisins
koma fram upplýsingar um greiðslu skráningargjalda.


 

Peningaverðlaun
verða fyrir fyrsta sæti í tölti opnum flokki og 100 m fljótandi skeiði
.