FM 2017 – skráningar

Þá er komið
að skráningu á Fjórðungsmót Vesturlands 2017 og fer hún fram í gegnum
SportFeng.  En mótið verður í Borgarnesi dagana 28/6 til 2/7 2017 í
Borgarnesi.  Dagskrá verður send út síðar eða að loknum skráningarfresti
þegar hægt verður að tímasetja keppnisgreinar með tilliti til fjölda í hverri
grein.  En forkeppni í gæðingakeppni öllum flokkum verður líklega á
miðvikudegi og fimmtudegi 28. og 29/6 nk.


 

ATH: Félögin sem eiga
keppnisrétt á mótinu skulu annast skráningu á sínum keppendum í
gæðingakeppnina, ekki keppendurnir sjálfir, og þar með eru félögin ábyrg fyrir
skráningunni.  Þetta á við um skráningu í A flokk, B flokk, barnaflokk,
unglingaflokk og ungmennaflokk.  En keppendur skrá sig sjálfir í tölt
(tölt opinn flokkur og tölt 17 ára og yngri) og skeiðgreinar sem eru 100 m, 150
m og 250 m.


 

Varðandi skráninguna skal þetta
tekið fram:


·         Hvert félag sem á keppnisrétt á mótinu
má senda einn keppanda fyrir hverja 50 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu
(þannig að félag með t.d. 251-300 félagsmenn má senda 6 keppendur)


·         Hægt verður að skrá frá og með
sunnudeginum 11. júní 2017

  • Skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní
    2017.  Sami frestur er til að greiða skráningargjöldin og skráning
    öðlast ekki gildi fyrr en skráningargjald er greitt.

  • SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132.

  • Skráningargjald í gæðingakeppni (A og B flokkur,
    barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur) er 5.000 kr. á hvern
    hest.  Skráningargjald í tölti er 7.000 kr. á hvern hest en í
    skeiðgreinum 3.500 kr. á hvern hest.

  • Skráningargjöld skal greiða á reikning:

    • kt. 450405-2050

    • banki: 0326-26-002265

    • kvittun fyrir greiðslu
      skráningargjalda skal send á netfangið
      thoing@centrum.is Mjög
      áríðandi að kvittun sé send á þetta netfang

  • Hvert félag má skrá tvo varahesta í hverja grein
    gæðingakeppninnar. Til að skrá varahest er hestur og knapi skráður inn í
    mótið í SportFeng en ekki merkt við neina keppnisgrein.  En
    senda þarf upplýsingar um varahestinn og í hvaða grein hann er varahestur
    í á netfangið
    thoing@centrum.is

  • Keppendur skrá sig sjálfir í tölt og skeiðgreinar í
    Skráningakerfi SportFengs og í lok skráningarferlisins koma fram
    upplýsingar um greiðslu skráningargjalda.

 

Félög eru hvött til
að vera tímanlega með skráningar ef upp koma vandamál.  En komi upp
vandamál skal hafa samband við Þórð Ingólfsson
thoing@centrum.is eða s. 893 1125

 

Ræktunarbú:
 
Þeir sem vilja taka
þátt í sýningum ræktunarbúa skulu tilkynna það fyrir miðnætti 18/06 2017 á
netfangið
amundi@isl.is (s. 892 5678).  Skráningargjald á ræktunarbú er 50.000 og skal
greiða það á sama reikning og tilgreindur er hér að ofan um leið og skráning
fer fram og kvittun send á
amundi@isl.is  Lágmarksfjöldi hrossa í ræktunarbússýningu er fimm hross.
 Með skráningunni skal senda nafn hrossa sem munu taka þátt, ætterni,
aldur og IS númer.  Einnig upplýsingar um knapa ef hægt er.


 

Þess má geta að það
verða verðlaun (peningar og/eða hlutir sem hafa peningalegt verðmæti) fyrir
fyrsta sætið í tölti opnum flokki og fyrir fyrsta sætið í 100 m skeiði.


 

Með von um góða
þátttöku á fjórðungsmóti Vesturlands 2017 í Borgarnesi



Framkvæmdanefndin