Landsmót á Hellu 2020

Kæru félagsmenn!
Nú geta félagsmenn keypt vikupassa á Landsmót Hestamanna sem haldið verður á Hellu 6. – 12. júlí 2020 og styrkt um leið félagið okkar. Með því að kaupa í forsölu í gegnum linkinn hér að neðan renna 1.000 kr til hestamannafélagsins. Miðaverð í forsölu er aðeins 16.900 kr.
Tökum höndum saman – styðjum félagið og tryggjum okkur um leið miða á Landsmót hestamanna 2020 á besta mögulega verði.