Nafnakosning

Kosning um nafn á sameinuðu félagi hestamanna er hafin. Póstur hefur verið sendur á 315 gild netföng félaga í Faxa og Skugga með tengli á atkvæðaseðil. Frestur til að kjósa er til kl. 16 á mánudag 22. janúar. Athugið að það er aðeins hægt að kjósa einu sinni fyrir hvert netfang. Einnig þarf að gæta að því að ef póstföng eru varin af öflugum vírusvörnum, t.d. í fyrirtækjum þá er hugsanlegt að pósturinn fari í „rusl“ póst. Nafnið verður svo opinberað á mánudagskvöld.