Frá Vesturlandsdeild félags hrossabænda

Til þeirra sem þurfa að afsetja hross.


Nú er farið að seljast meira af hrossakjöti á Japansmarkað og farið að farga hrossum til útflutnings þangað. Þeir sem vilja afsetja hross ættu því að hringja í Svenna á Hvammstanga s: 895-1147 eða Ingu Jónu á Hellu s: 512-1100
og tilkynna um afsetningu. Áríðandi er að halda slátrun áfram út febrúar svo
þetta verkefni nái sem bestu brautargengi. Minnt er á að Japanshæf hross taka á
sig „premium“ í skilaverði.

Japanir
eru farnir að kaupa meiri afurðir af hrossinu en bara pístólurnar.  Þeir
kaupa orðið alla fituna, lifrina, kinnvöðvan og eitthvað meira af
innyflum.  Þetta er bara besta mál.

Þótt
verðið sé ekki mjög hátt,  eitthvað í kringum  122.-  pr
kg,   hrossið er þá farið og ekki þarf að kaupa gröfu til förgunar.

Bestu
kveðjur  frá Vesturlandsdeild Félags hrossabænda