Hestamannafélagið Borgfirðingur
Opið íþróttamót Borgfirðings
Hestamannafélagið Borgfirðingur heldur opið íþróttamót á félagssvæði sínu við Vindás 11. og 12. Júlí n.k.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum:
Opinn flokkur – meistaraflokkur: T1, T2, V1, F1, F2, PP1
Opinn flokkur: P2 (100m. skeið – allir flokkar)
Opinn flokkur 1. Flokkur: T3, T4, V2, F2, PP1
Opinn flokkur: 2. Flokkur: T7, V5
Ungmennaflokkur: T3, V2, F2, PP1
Unglingaflokkur: T3, V2,
Barnaflokkur: T7, V5
Pollaflokkur: – Skráning í tölvupósti.
Skráningargjald er kr. 4.000.- pr. grein í öllum flokkum nema frítt í barnaflokki –
Skráningarfrestur er til kl. 24 þriðjudaginn 7. júlí – ef skráning berst eftir að fresti líkur er gjaldið tvöfalt.
Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður greinar eða sameina flokka ef skráning fer niður fyrir 4 í grein. Miðað er við að forkeppni fari fram á laugardag en öll úrslit og skeiðgreinar á sunnudag.
Nánari upplýsingar gefur Tinna Rut S: 691-7222 – Aðstoð við skráningar, Kristján s: 898-4569. Fyrirspurnir skal senda á borgfirdingur@borgfirdingur.is
Mótanefnd.