Hæfileikamótun LH – Einstakt tækifæri fyrir unglinga

Einstakt tækifæri fyrir unglinga – Hæfileikamótun LH

Með nýju fyrirkomulagi í afreksmálum LH hefur verið ákveðið að setja af stað verkefni fyrir
unga og metnaðarfulla knapa, það kallast Hæfileikamótun LH og fer af stað veturinn 2020.

Hæfileikamótun LH samanstendur af 6 hópum sem staðsettir eru í hverjum landshluta fyrir sig.
Fjöldi knapa í hóp er 8. Gjaldgengir í hópinn eru unglingar á aldrinum 14-17 ára
(unglingaflokkur). Einstakt tækifæri fyrir unga metnaðarafulla knapa að undirbúa sig með
markvissri kennslu til að takast á við verkefni bæði hérlendis og á erlendum vettvangi.
Staðsetning hópa:
• Höfuðborgarsvæði (8 manna hópur)
• Höfuðborgarsvæði (8 manna hópur)
• Suðurland (8 manna hópur)
• Norðurland (8 manna hópur)
• Vesturland (8 manna hópur)
• Austurland (8 manna hópur)
Viðburðir og fyrirkomulag:
• Janúar – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)
• Mars – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)
• April/mai – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)
• Sept – sýnikennsla (án hests)
• Fyrirlestur með fagteymi ÍSÍ (án hests)
Kostnaður knapa er 100.000kr fyrir árið.
Knapar sem eru gjaldgengir í hópinn senda umsókn til LH.
Í umsókn skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar
• Nafn, aldur og félag
• Lýsing á keppnisárangri undanfarin 2 ár
• Námskeið sem knapi hefur tekið
• Video (max 5-6 min) þar sem knapi sýnir gangtegundir:
o Fet
o Brokk
o Hægt stökk, hraðinn aukinn í hratt stökk og síðan hægt niður á fet
o Hægt tölt, hraðinn aukinn yfir í hratt tölt og síðan hægt niður á fet
o Frjálst er að sýna fimiæfingar
Verkefnastjóri er Vilfríður F. Sæþórsdóttir. Allar umsóknir berist á netfangið
vilfridur@lhhestar.is. Hægt er að nálgast allar upplýsingar í gegnum sama netfang.
Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 26.nóvember 2019. Hópar verða tilkynntir
um miðjan desember.