Hestamannafélagið Borgfirðingur boðar til aðalfundar 29. nóvember 2022 kl 20:00 í félagsheimilinu vindási. Hvetjum alla félagsmenn til að mæta. Léttar veitingar og heitt á könnunni! Dagskrá: Fundarsetning Kjör starfsmanna fundarins Skýrsla stjórnar Reikningar félagsins til samþykktar Skýrslur nefnda Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikninga og skýrslur nefnda, ásamt afgreiðslu á ársreikningum Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram af fráfarandi stjórn Kynning …
Fulltrúar Borgfirðings á Landsmóti
Þeir hestar og knapar sem hafa unnið sér inn þáttökurétt á Landsmóti 2022 fyrir Hestamannafélagið Borgfirðing í eftirfarandi flokkum eru: – A-flokkur: Forkur frá Breiðabólsstað 8,65 og Flosi Ólafsson Hervar frá Innri-Skeljabrekku 8,40 og Gústaf Ásgeir Hinriksson Dalvar frá Dalbæ II 8,39 og Ragnar Snær Viðarsson Hrund frá Lindarholti 8,35 og Ísólfur Ólafsson – B-flokkur: Tími frá Breiðabólsstað 8,63 og …
Firmakeppni
Firmakeppni með hefðbundnu sniði verður haldin 22. maí 2022. Keppnin hefst kl 14 með pollaflokk þá barnaflokk svo unglingar, kvennaflokkur og að lokum karlaflokkur. Hlökkum til að sjá sem flesta á velli félagsins í Borgarnesi.
Lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar
Föstudaginn 29. apríl fer fram lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar og það má svo sannarlega búast við veislu Keppt verður í skeiði í boði Hestaflutninga B. Kóngs og svo í tölti T1 í boði Export-hesta. Byrjað verður á 100 m skeiði kl 18:00 og er það utanhúss en töltkeppnin hefst kl 19:30inni í reihöll. Að keppni lokinni verður lokahóf og munu verða atriði í …
Opið íþróttamót Líflands og Borgfirðings
Opið íþróttamót Líflands og Borgfirðings Fer fram helgina 7-8 mai í Borgarnesi Keppt verður í T7 og V5 barnaflokki og 2 flokki T3 og V2 í unglinga, ungmenna og 1.flokk F2 í ungmennaflokki og 1.flokki 100 m skeið Pollaflokkur Skraningagjald 4000 Síðasti skraningardagur er mið 4 maí Skráð í gegnum sportfeng
Niðurstöður KB mótaraðarinnar
Niðurstöður úr einstaklingskeppni KB mótaraðarinnar réðust á sunnudaginn á síðasta móti raðarinnar. Stigahæsti keppandinn 2022 heilt yfir var Björg María Þórsdóttir Barnaflokkur 1.Aþena Björgvinsdóttir 24 stig 2.Kristin Eir Hauksdóttir 22 stig 3.Svandís Svava Halldórsdottir 19 stig 4.Ari Gunnarsson 12 stig Jafnir í 5 sæti. Haukur Orri og Anton Már 10 stig Unglingaflokkur 1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir 34 stig 2. Embla …
Marteinn sæmdur Starfsmerki UMFÍ
Á 100. sambandsþingi UMSB var Marteinn Valdimarsson sæmdur Starfsmerki UMFÍ. Hallbera Eiríksdóttir veitti honum viðurkenninguna en Marteinn hefur verið ötull í starfi hestamannafélaga í yfir fimmtíu ár, í Glað, Skugga og nú Borgfirðingi. Marteinn hefur einnig sinnt félagsstörfum innan Landsambands Hestamanna og er nú í stjórn Reiðhallarinnar Vindáss ehf í Borgarnesi. Hann hefur unnið að reiðvegamálum á vegum Skugga og …
Kvennatölt Borgfirðings
Opið kvennatölt Borgfirðings 2022 verður haldið laugardaginn 2. apríl í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi. Boðið verður upp á 4 flokka og eru 2-3 saman í holli: Meistaraflokkur-T3 1.flokkur – T3 2.flokkur – T7 3.flokkur – T8 (stjórn hefur heimild til a sameina flokka ef ekki næst nóg skráning) 18ára aldurstakmark. Verð á hest er 3500kr. Þemað í ár er GULLLITAD og …
Minnum á félagsfund í kvöld kl 20
Stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings boðar til almenns félagsfundar í félagsheimilinu við Vindás þann 23.febrúar klukkan 20:00. Dagskrá fundarins; 1.Heimild til stjórnar að taka lán hjá Arion-banka að upphæð 4,5 millj. kr. gegn veði í félagsheimili félagsins. 2.Heimild til handa gjaldkera, Þórdísar Arnardóttur, að undirrita nauðsynleg skjöl vegna lántökunnar. 3.Veita stjórn heimild til að óska eftir því að Selási ehf. verði slitið. …