Nú er hafin vinna við lagningu reiðvegar milli Lindarholts og Ferjubakka og er það vonum seinna. Bætir þessi framkvæmd verulega úr brýnni þörf. Ennfremur má geta þess að Vegagerðin er að leggja nýjan reiðveg milli Hvítárvalla og Hvanneyrar í kjölfar mikilla vegaframkvæmda á þessari leið. Að loknum þessum framkvæmdum sé komin nokkuð góð reiðvegatenging milli Borgarness og Hvanneyrar, og svo …
Þegar frost fer úr jörðu
Rétt þykir að benda á, þótt þarflaust virðist, að umferð vélknúinna ökutækja er algerlega bönnuð á reiðvegum og velli félagsins, sérstaklega þegar hlánar. Reiðvegir eru ekki byggðir upp með það burðarþol að unnt sé að aka þá við allar aðstæður, og allra síst þegar frost er að fara úr jörðu. Því miður sjást þess dæmi að út af bregði.
Myndefni á WorldFeng
Félagið hefur keypt aðgang fyrir alla félagsmenn sína að því myndefni sem birt er á WorldFeng. Er hér um að ræða myndir frá eldri landsmótum og er sífellt að bætast við. Ef einhverjir eiga í erfiðleikum með að tengjast er velkomið að hafa samband við Þórdísi Arnardóttir fyrrum formann félagsins annað hvort á Facebook eða netfangið falkaklettur5@gmail.com . Mun hún …
Á tímum COVID19
Það eru sérkennilegir tímar nú um stundir og hafa verið síðustu vikur, samkomubann og óáran. Ekki er útséð um það ennþá hvenær aftur fer að verða óhætt að setja starf hestamannafélagsins af stað – það verður þó aldrei sem áður – Við erum væntanlega búin að missa af innitímabilinu að mestu og er skellurinn fyrir Faxaborg og Selás ehf mikill. …
FEIF Youth Cup 2020
FEIF Youth Cup 2020 verður haldinn í Vilhelmsborg í Danmörku 18. – 26. júlí 2020 og er fyrir unglinga sem eru 14 – 17 ára. Youth Cup er alþjóðleg keppni þar sem keppt er í T7, T3, T6, PP2, P2, V2, F2, V5, FR1, TR1, CR1, TiH Level 1, FS3, Team test. Hér fyrir neðan eru upplýsingar og umsóknareyðublað fyrir …
Í kjölfar samkomubanns
Þar sem sett hefur verið á samkomubann frá og með mánudegi er óhjákvæmilegt annað en dagskrá vetrarins raskist verulega hjá félaginu og öðrum þeim sem áætluðu að halda viðburði í Faxaborg og væntanlega líka í félagsheimilinu. Ljóst er að fella verður niður mót, bæði í Vesturlandsdeild og eins fer KB- mótaröðin vart af stað fyrr en banninu verður aflétt. Má …
Sýnikennsla í Faxaborg
Sýnikennsla Faxaborg 20. mars kl 20. Sigvaldi Lárus Guðmundsson, skeið og þjálfun þess Sigvaldi starfar á Kvistum sem umsjónarmaður og aðal- þjálfari búsins. Sigvaldi hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini og útskrifaðist frá Háskólanum á Hólum. Hann hefur víðtæka reynslu í tamningum, þjálfun og kennslu. Sigvaldi er metnaðarfullur þjálfari með hestvænar aðferðir að leiðarljósi og leitar ávalt eftir góðu samstarfi …
Námskeið 50+ í Faxaborg
Námskeið fyrir 50+ . Þórdís Fjeldsted heldur vinsælu námskeiðin fyrir 50 ára og eldri. Kennt verður 18.mars / 1.aprí / 15. apríl / 29. apríl / 15. maí Tími er milli frá kl 18-20 í Faxaborg. Verð frá 13.000 – 19.500 kr eftir þátttöku. Lágmarksfjöldi 8 hámark 12 manns. Skránig: lisayr83@hotmail.com
Ís-Landsmót á Svínavatni 14. mars.
Ís-Landsmót á Svínavatni þann 14. mars n.k. – sjá mynd
KB mótaröð – fjórgangur
KB mótaröðin – fjórgangur Fjórgangur KB mótaraðarinnar fer fram í Faxaborg laugardaginn 7. mars n.k. Keppt verður í fjórgangi V2 í eftirfarandi flokkum (fjöldi skráninga ræður því hvað margir eru inn á í einu í forkeppni): Barnaflokki – unglingaflokki – ungmennaflokki – 2. flokki – 1. flokki og opnum flokki. Mótið hefst kl. 10. Dagskrá: Barnaflokkur Unglingaflokkur Ungmennaflokkur Úrslit í …